Í haust tók Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
upp þá nýbreytni að standa fyrir reglulegum
menningarviðburðum − tónleikum, flutningi
hljóðrita og kynningum á sögulegu efni −
í sal safnsins á Laugarnesi. Fest voru kaup á
vönduðum hljómflutningstækjum
og myndvarpa í þeim tilgangi.
Viðburðirnir verða í anda
sumartónleikanna, á þriðjudagskvöldum,
um klukkustundar langir, en hefjast klukkan 20:00, og boðið
er upp á kaffi í kaffistofu safnsins á eftir þar sem
rabba má við flytjendur.
Á liðnu hausti voru átta slíkir
viðburðir á tímabilinu frá
18. október til 22. nóvember.
|
Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 20:00 |
|
Hrosshár á strengi
og holað innan tré
Brot úr sögu klassísks fiðluleiks
á Íslandi
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og
Povl Christian Balslev píanóleikari
Meðal annars verður fjallað um Þórarin Guðmundsson
(1896−1979) sem fyrstur Íslendinga hélt utan til að læra
klassískan fiðluleik og að hafa fiðluleik og kennslu
að aðalstarfi.
Leikin verða lög frá hans tíð og eftir hann, sum hver
á fiðlu sem hann lék á.
|
Þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20:00
Klassík við Sundin |
|
Fjárhirðar á flakki
Katrin Heymann flautuleikari og Össur Ingi Jónsson óbóleikari.
Boðið er upp á ferðalag um vítt svið tónamála
heimsins.
Flutt verður verkið Fjárhirðar Provence eftir E. Bozza,
ásamt dúettum Ginastera, Mozarts, Yun og
einleiksflautusónötu eftir C.P.E. Bach. |
Þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20:00 |
J.S. Bach |
Einleikstónleikar
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari
J.S. Bach
1685−1750 |
Sónata I í g moll, BWV 1001
adagio • fuga, • allegro
• siciliana • presto
|
|
Partíta I í h moll, BWV 1002
allemanda • double • corrente • double presto
• sarabande • double • tempo di borea • double
|
|
Þriðjudaginn 7. mars kl. 20:00 |
J.S. Bach |
Einleikstónleikar
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari
J.S. Bach
1685−1750 |
Sónata II í a moll, BWV 1003
grave • fuga • andante • allegro
|
|
Partíta II í d moll, BWV 1004
allemanda • corrente • sarabanda • giga
• ciaccona
|
|
Þriðjudaginn 14. mars kl. 20:00
Klassík við Sundin |
Ármann, Eva Þyri, Pamela og Sigurður |
Morricone og Rota í nýju ljósi
Pamela De Sensi flauta, Ármann Helgason klarinett,
Sigurður Halldórsson selló og Eva Þyri Hilmarsdóttir
píanó
Bornir eru saman tveir risar ítalskrar tónlistar, Nina Rota og Ennio Morricone.
Tónverk þau sem flutt verða fyrir flautu, klarinettu, selló og píanó
bjóða upp á þau ýmsu litbrigði sem þeir voru þekktir fyrir.
Verk þessi hafa sjaldan eða aldrei verið flutt á Íslandi. Þá
verður frumflutt verkið Melódía sem Steingrímur
Þórhallsson samdi innblásinn af verkum Ítalanna.
|
Þriðjudaginn 21. mars kl. 20:00 |
J.S. Bach |
Einleikstónleikar
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari
J.S. Bach
1685−1750 |
Sónata III í C dúr, BWV 1005
adagio • fuga • largo • allegro assai
|
|
Partíta III í E dúr, BWV 1006
preludio • loure • gavotte en rondeau • minuet I
• minuet II − minuet I da capo
• bourée • gigue
|
|
Þriðjudaginn 28. mars kl. 20:00 |
Hlíf og Nína Margrét |
Þrjár af Mannheim sónötum Mozarts
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðla og
Nína Margrét Grímsdóttir píanó
W.A. Mozart
1756−1791 |
Sónata nr. 18 í G dúr K 301
Allegro con Spirito• Allegro
|
|
Sónata nr. 21 í e moll K 304
Allegro • Tempo di Menuetto
|
|
Sónata nr. 22 í A dúr K 305
Allegro di molto • Tema con variatione: Andante grazioso − Allegro
|
|
Þriðjudaginn 11. apríl kl. 20:00 |
Cole og Kristján |
Svanasöngur Schuberts
Kristján Jóhannesson bassabaritón og
Cole Knutson
píanóleikari flytja Svanasöng eftir Franz Schubert.
Svanasöngur D 957 er safn 14 söngva eftir
Franz Schubert sem hann samdi árið 1828, skömmu áður en hann
lést, við ljóð eftir Ludwig Rellstab og Heinrich Heine.
Kristján Jóhannesson lærði hér heima og við
Tónlistarháskólann í Vín, en starfar
nú við Óperuna í St. Gallen í Sviss. Cole Knutson er
mjög fjöhæfur kanadískur píanó- og
saxófónleikari sem nú stundar
framhaldsnám við Liedzentrum Liedakademie í
Heidelberg.
|
Þriðjudaginn 18. apríl kl. 20:00
Klassík við Sundin |
Ástríður og Anna |
Tónleikunum frestað til hausts vegna veikinda
Tímaferðalag um tónsmíðar Wagners
Anna Jónsdóttir sópran og
Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó
|
Þriðjudaginn 2. maí kl. 20:00 |
|
..dalurinn hér kvað við af flautuspili smalanna sem kváðust
á
Svava Bernharðsdóttir víóluleikari,
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og
Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari
fjalla um hið einstaka tímabil þegar tónlist
hljómaði um alla Suður-Þingeyjarsýslu,
söngur, flautu- og fiðluleikur. Vitað er að til voru
nokkuð á annað hundrað fiðlur í
sýslunni og fjöldi manna kunni að leika á þær.
|
Þriðjudaginn 9. maí kl. 20:00 |
Þórdís, Martin og Hlíf |
Þrjú strengjatríó
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðla,
Martin Frewer víóla og
Þórdís Gerður Jónsdóttir selló
Ernst von Dohnányi
1877−1960 |
Serenade ópus 10
Marcia • Romanza • Scherzo • Tema con variazioni
• Rondo − allegro vivace |
|
Alexander Liebermann
f. 1989 |
Séð að himni ofan (2021)
|
|
W.A. Mozart
1756−1791 |
Divertimento í Es dúr, K 563
Allegro • Adagio • Menuetto, allegretto • Andante
• Menuetto, allegretto • Allegro
|
|
Þriðjudaginn 16. maí kl. 20:00
Klassík við Sundin |
Hafdís og Svanur |
Tónlist fyrir flautu og gítar
Hafdís Vigfúsdóttir flauta og Svanur Vilbergsson gítar
Í þessari litríku efnisskrá hefjast leikar á
barokktímanum og teygja sig til samtímatóna
Lowell Liebermann, með viðkomu í franskri
ljóðrænu og þýskri rómantík. |