Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 22.01.25


„Mitt Laugarnes“

Á þriðja fræðslu­kvöldi sem haldið er und­ir merkj­um Frið­lýs­um Laugar­nes fjallar Þor­grím­ur Gests­son um persónu­leg tengsl sín við Laugar­nes og rek­ur að­drag­anda þess að hann fór að kynna sér þús­und ára sögu Laugar­ness, sem varð að lokum að bókinni „Mann­líf við Sund − býl­ið, byggð­in og borg­in“ sem kom út 1998 og var endur­útgef­in 12 ár­um síðar.
    Þorgrímur mun segja frá því hvern­ig jarð­eign­in gekk á milli kyn­slóða sömu ætt­ar öld­um sam­an og hvers vegna að­setur biskups var að lokum flutt þangað. Þá reynir hann að gera grein fyrir til­finn­ingu sinni fyr­ir sjálfu Laugar­nes­þorp­inu og hvern­ig borg­in gleypti það.
    Nú stend­ur bæjar­hóll­inn einn eftir, held­ur koll­ótt­ur, og horf­ur eru á að sam­tím­inn eigi eftir að slétta yfir spor þús­und ára mann­lífs þar sem enn má þó sjá glitta í. Fyrir­lest­ur­inn verð­ur að vanda í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar og hefst klukkan 20 þriðju­dags­kvöld­ið 28. janúar 2025.

Þorgrímur Gestsson hefur starf­að sem blaða­mað­ur, kenn­ari, rit­stjóri og rit­höf­und­ur. Hann hefur gert útvarps­þætti um sögu­legt efni og pistla um ferð­ir um forn­sagna­slóð­ir í Nor­egi, Fær­eyjum og Orkn­eyj­um. Eftir hann liggur einnig fjöldi rita um sögu­legt efni, meðal ann­ars um verka­lýð og vinnu­rétt auk fyrrg­reinds rits um Laugar­nes. Faðir hans, Gestur Þorgrímsson ólst upp í Laugarnesi og telur Þorgrímur ætíð rætur síðan þaðan.

Á fjórða fræðslu­kvöldi Frið­lýs­um Laugar­nes, þriðju­dags­kvöld­ið 18. febrú­ar, segir Stefán Páls­son sagn­fræð­ing­ur frá fjöl­skyldu sem kom til lands­ins 1926 með dýrgarð með sér og sett­ist að í Laugar­nesi. Því var sleg­ið föstu að um sígauna væri að ræða.

Söfn­un undirs­krifta und­ir á­skor­un til ráð­herra um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­mála um að frið­lýsa Laugar­nes sem bú­setu- og menn­ing­ar­landslag lýk­ur um mán­aðar­mót­in jan­úar/febrúar.

Frítt er inn á viðburði á Friðlýsum Laugarnes. Heildar­yfirlit vor­dagskrár má nálgast hér.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • sími 553−2906 • LSO(at)LSO.is