Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 14.01.25


Höfuðból Ingólfs Arnarsonar var í Laugarnesi


Horft til Laugarness og Viðeyjar. Eiríkur K. Jónsson
Ann­að fræðslu­kvöld und­ir merkj­um Frið­lýsum Laugar­nes verð­ur í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar þriðju­dags­kvöld­ið 21. janú­ar 2025 klukk­an 20:00
    Þar mun Árni Árnason kynna niður­stöður rann­sókn­ar sinn­ar á því hvar fyrsti nor­ræni land­náms­mað­ur­inn, Ing­ólf­ur Arnar­son, valdi sér höfuð­ból. Öf­ugt við við­tekn­ar hug­mynd­ir var það ekki í Kvos­inni, þar sem bær­inn Vík stóð við Aðal­stræti, held­ur í Laugar­nesi upp af vík­inni Reykjarvík sem var senni­lega und­an Kirkju­sandi. Hún náði frá Laugar­nesi að Höfða þar sem Rauðar­ár­vík tók við. Í fyrir­lestri sínum mun Árni fara yfir marg­vís­leg­an fróð­leik og heim­ild­ir sem styðja þessa full­yrð­ingu.

Árni Árnason er höf­und­ur bókar­innar Ing­ólf­ur Arnar­son: Arf­leifð hans og Ís­lands­sag­an í nýju ljósi sem kom út í nóv­emb­er 2022. Þar tekur hann til rann­sókn­ar til­gátu afa síns, sem hann var lát­inn heita eftir, um það að Ing­ólf­ur hafi átt höfuð­ból sitt í Laugar­nesi og því hafi til­heyrt eyj­arn­ar Eng­ey og Við­ey ásamt jörð­un­um Kleppi, Vatns­enda og Elliða­vatni. Í bók­inni fjall­ar Árni með gagn­rýn­um hætti um þær rit­uðu heim­ildi­r, sem er að finna um Ing­ólf og af­kom­end­ur hans, og rök­in fyrir því að höfuð­ból alls­herjar­goð­anna hafi ver­ið í Laugar­nesi. Magn­ús góði Guð­mund­ar­son var síð­asti alls­herjar­goðinn, sem að öllum lík­ind­um bjó þar, en erf­ingj­ar hans áttu Eng­ey og Laugar­nes í marg­ar aldir.

Þriðja fræðslukvöldið verður viku síðar og þá fjallar Þorgrímur Gests­son um Laugar­nesið, eigin tengsl og sögu þess allt frá Land­námi.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur starf sitt á þessu ári með röð fyrirlestra undir heitinu Frið­lýsum Laugar­nes og stend­ur jafn­framt fyrir söfn­un undir­skrifta til að skora á ráð­herra um­hverfis­mála að frið­lýsa Laugar­nes sem búsetu- og menningar­lands­lag. Þeir sem vilja styðja áskorunina geta gert það hér.
Frítt er inn á viðburði á Friðlýsum Laugarnes
Heildar­yfirlit vor­dagskrár má nálgast hér
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • sími 553−2906 • LSO@LSO.is