Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar 08.01.25
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur starf sitt á þessu ári með röð
fyrirlestra undir heitinu Friðlýsum Laugarnes og stendur jafnframt fyrir
söfnun undirskrifta til að skora á ráðherra umhverfismála
að friðlýsa Laugarnes sem búsetu- og menningarlandslag.
Fyrstu fyrirlestrarnir verða þriðjudagskvöldið
14. janúar klukkan 20:00. Þar segir Guðmundur
Þórhallsson frá aðdraganda að byggingu
Holdsveikraspítalans á Laugarnesi sem starfaði á
árunum 1898 til 1943. Inn í þá sögu fléttist stofnun
Oddfellowreglunnar á Íslandi árið 1897.
Í erindi sínu Lífið á
Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi fjallar Erla Dóris
Halldórsdóttir sagnfræðingur um starfið
á spítalanum og hvernig tókst að vinna bug á þessum
hræðilega sjúkdómi.
Þriðjudaginn 21 janúar segir Árni Árnason frá þeirri
niðurstöðu rannsóknar sinnar að
Ingólfur Arnarson hafi byggt bæ sinn í
Laugarnesi, en ekki á jörðinni Vík og viku síðar fjallar
Þorgrímur Gestsson um Laugarnesið, eigin tengsl og sögu þess
allt frá Landnámi.
|