|
Sýning Þuríðar Sigurðardóttur −
Þuru − verður opnuð í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar föstudaginn 29. september klukkan 16:00.
Þura tengist safninu á sérstakan hátt þar sem
staðsetning þess í Laugarnesi leikur lykilhlutverk.
Á sýningunni býður listamaðurinn
áhorfendum í ferðalag um staði og tíma sem bæði
eiga sér almenna og sögulega skírskotun en jafnframt mjög
persónulega. Laugarnes er ríkt af sögu langt aftur í aldir og
á þessum sérstaka stað hafa ótal manns átt heima í
gegnum tíðina. Ein af þeim er Þura, en hún fæddist og
ólst upp í gamla Laugarnesbænum, steinsnar frá
Listasafni Sigurjóns. Þar var hennar leikvöllur og er
jafnvel enn í dag. Henni er hugleikið hvernig mannleg tilvist
er bundin stöðum órjúfanlegum böndum,
æskustöðvar skipa sérstakan sess í huga manns
og móta tilveruna að svo miklu leyti. En rétt eins og við
mennirnir taka staðir breytingum í tímans rás
og eftir standa minningar og minjar sem eru hvort tveggja hverful fyrirbæri,
brotakennd og óáreiðanleg. Á sýningunni
kemur einnig við sögu Búrfellsgjá, sem er í
hennar heimabæ í dag. Þura gengur gjarnan þennan
farveg hrauns sem rann fyrir um 8.000 árum og skildi eftir sig breiðgötu
með háum klettaveggjum á báðar hliðar,
þar sem ólíkir tímar mætast og hafa orðið
Þuru að yrkisefni.
Þura útskrifaðist frá Listaháskóla
Íslands með BA gráðu í myndlist árið 2001. Frá
námslokum hefur hún unnið að myndlist og sýnt
víða bæði innanlands og utan. Þura fæst fyrst og fremst við
olíumálverk og viðfangsefnið er gjarnan
náttúran, stundum með þröngt eða óvænt
sjónarhorn. Hún hefur kennt við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og á eigin námskeiðum. Hún
átti þátt í stofnun og rekstri StartArt gallerísins
við Laugaveg sem starfrækt var 2007−2009. Þuríður var
valin bæjarlistamaður Garðabæjar 2004. Þura er
jafnframt ein ástsælasta söngkona
þjóðarinnar og hefur komið víða við á
löngum og farsælum tónlistarferli. |