Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 30.09.23
Ná í textaskjal
Haustdagskrá í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar hefst með því að
Reynir Tómas Geirsson fyrrverandi prófessor og yfirlæknir
segir frá hinum fræga refli frá Bayeux, sem saumaður var í Kent
á Englandi á 11. öld og hefur lengst af verið geymdur í
bænum Bayeux í Normandí. Hann er eins konar myndasaga um
orrustuna við Hastings í Englandi árið 1066, þegar
innrásarlið frá Normandí réðst inn í
England. Á þriðjudegi eftir viku segir svo Kristín Ragna
Gunnarsdóttir teiknari og rithöfundur frá
Njálureflinum, sem á svipaðan hátt segir
frá atburðum Njálssögu. Kristín Ragna hannaði og
teiknaði þann refil sem lokið var við að sauma í fyrir um tveimur
árum. Síðan verða vikulegir tónleikar í safninu
fram til 7. nóvember,en þá flytja þau Gissur Páll
Gissurarson tenórsöngvari og dr. Nína Margrét
Grímsdóttir píanóleikari
tónleikakynningu tileinkaða sönglögum Árna
Thorsteinssonar tónskálds.
Saga saumuð á langan refil
Reynir Tómas Geirsson hefur sagt frá Bayeux reflinum í
Landnámssetrinu í Borgarnesi og víðar og
ætíð við mikla hrifningu áheyrenda og áh0rfenda.
Silja Aðalsteinsdóttir segir svo frá í Tímariti
Máls og Menningar 14. maí 2021:
Á reflinum eru raktir í myndasögu með dálitlum texta þeir
dramatísku atburðir sem leiddu til þess að Vilhjálmur
bastarður, konungur yfir Normandí, réðst inn í
England þar sem hann þóttist réttborinn til ríkis.
Þar var fyrir á fleti Engilsaxinn Haraldur Guðinason, valinn
af vitringum ríkisins eftir lát Játvarðs konungs,
frænda Vilhjálms, og vildi ekki víkja. Svo ólánlega vildi til
fyrir Harald, sumarið 1066, að að honum sóttu tveir herir, annar
úr norðri undir forystu Haralds harðráða Noregskonungs og
Tósta jarls Guðinasonar, hinn úr suðri undir forystu
Vilhjálms. Norðmenn voru fyrr á ferðinni og þann her sigraði
Englandskóngur á norðurlandi. Þá frétti hann af
Vilhjálmi og herinn gekk hina löngu leið suður, var því
orðinn ansi lúinn þegar hann mætti Normönnum í
Hastings. Þar féll Haraldur Guðinason og Vilhjálmur
hirti krúnu hans. Síðan hefur hann heitið Vilhjálmur
sigurvegari.
Reynir Tómas er sögumaður af Guðs náð og gerði
þessa löngu sögu með sínum mörgu persónum og flóknu
fjölskyldutengslum skýra og afar skemmtilega. Ævintýralega
gaman var að fá að stúdera myndirnar á reflinum með
sínum ótalmörgu spennandi og jafnvel fyndnu smáatriðum sem
Reynir útskýrði á sinn fjörlega hátt. Það var líka
merkilegt að heyra hann lýsa tækninni við saumaskapinn, hinum
einstaka og endingargóða refilsaumi sem varðveittist á
Íslandi þótt hann týndist í öðrum
Evrópulöndum. Sérkennilegt er líka að sjá hvað
litirnir eru ennþá skærir og fallegir í þessu
nærri þúsund ára gamla handverki. Þá var ekki
síður fróðlegt að heyra Reyni lýsa ólíkri
hertækni Engilsaxa og Normanna sem sjá má á reflinum og
skipti sköpum í úrslitaorrustunni.
|