Fréttatilkynning um tónleika − English below

Sumartónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar

Listasafn Sigurjóns
þriðjudagskvöld 11. júlí 2023 kl. 20:30

Miðasala við inn­gang­inn
Aðgangseyrir kr. 2500
Tekið er við greiðslukortum

Hvar er safnið?

Marina og Julia
Smellið á smámyndina til að fá prenthæfa ljósmynd.

Hér má ná í pdf útgáfu af efnisskrá tónleikanna.

Nánari upplýsingar um tónleikana veitir:
Sybil Urbancic í síma 0043-1-3681343

Nánari upplýsingar um tónleikaröðina í heild veitir:
Hlíf Sigurjónsdóttir í síma 863 6805.

Vor­ahnung / Fyrir­boði
Marina Margaritta Colda sópran og Julia Tinhof píanó.
Tón­leik­ar til­eink­að­ir austur­ríkis­mann­inum Victor Urban­cic sem kom hing­að til lands árið 1938 ásamt Mel­ittu eigin­konu sinni, vegna upp­gangs naz­ista þar í landi. Hann var há­mennt­að­ur tón­listar­­mað­ur, af­burða pí­an­isti, orgel­­leik­ari og tón­skáld. Flutt verða tólf ein­söngs­lög frá ung­lings­ár­um hans − eitt þeirra við ljóð Mel­ittu − og ljóða­flokk­ur, sem hann samdi stuttu áður en hann yfir­gaf heima­land sitt. Einn­ig verða flutt tvö ein­leiks­verk fyrir píanó. Fæst verk­anna hafa heyrst á Íslandi áður.
Victor Urbancic kom til Íslands frá heima­landi sínu, Austur­ríki árið 1938. Hann var einn fjölda tón­skálda, sem af ýms­um á­stæð­um flæmd­ust burtu frá heima­landi sínu und­an nasism­an­um, sem rauf feril þeirra. Tón­verk Vict­ors Urban­cic á sviði ein­söngs­laga hafa t.d. fall­ið í óverð­skuld­að­an dvala og eru lítt þekkt. Nú hafa sópran­söng­kon­an Marina Colda og píanó­leik­ar­inn Julia Tin­hof tek­ið nokkur þeirra upp á disk­inn „Vorahnung“. Ljóð­in, sem Vict­or Urban­cic valdi, bera vott um hrifn­ingu hans korn­ung­um á kveð­skap skálda eins og Ed­uard Mör­ike, Lud­wig Uhl­and, Jul­ius Bier­baum, Eva von Col­lani, Theo­dor Storm, Christ­ian Morgen­stern, Con­rad Ferd­inand Meyer og fleiri. Marina Colda lauk prófi frá Tón­listar­háskól­an­um í Vín og var kenn­ari henn­ar Rann­veig Braga-Postl. Julia Tin­hof, sem einn­ig kenn­ir við há­skól­ann, er m.a. með­leik­ari Rann­veig­ar og hef­ur kom­ið fram með henni á Myrk­um Músík­dögu­m. Á efnis­skránni, sem þær Marina flytja nú á Ís­landi, eru tólf ein­söngs­lög sam­in á unglings­árum Victors - eitt þeirra við ljóð eiginkonu hans, Melittu - og ljóða­flokk­ur, sem hann samdi stuttu áður en hann yfirgaf heima­land sitt. Auk þess tvö eru píanóverk og hefur annað þeirra - og flest ljóðanna - aldrei heyrst á Íslandi fyrr.     S.U.

Austurríska sópransöngkonan Marina Margaritta Colda stundaði söng- og söngkennaranám við Tónlistar­háskól­ann í Vín. Hún hefur sungið hlutverk Marie í Grüezi − Der Wilde Mann eftir Robert Stolz með Ensemble Mutz (Musiktheater Zürich), Adele í Leðurblökunni eftir Johann Strauss með Ensemble Oper@Tee, Gretel í Hänsel und Gretel eftir Engelbert Humperdinck hjá Oper in der Krypta. Einnig hefur hún komið fram í leiksýningum í Theater in der Josefstadt sem Jugend í Der Bauer als Millionär eftir Ferdinand Raimund og Nannett í Das Mädl aus der Vorstadt eftir Johann Nestroy í Schlossspiele Kobers­dorf. Síðast kom hún fram sem Rita í óperettunni Die Rose des Kaisers eftir Paul Hertel í Theater Center Forum í Vín.
    Undanfarin ár hefur hún sérstaklega kynnt sér og flutt lög eftir kventónskáld. Fanny Hensel, Clara Schumann, Amy Beach, Cecile Chaminade og sérstaklega Pauline Viardot eru meðal þeirra. Hún söng úrval af þeim á sýningunni Musica Femina í Orangerie Schönbrunn. Geisladiskurinn „Vorahnung“, með sönglögum Victors Urbancic í flutningi hennar og Juliu Tinhof kom út hjá Gramola útgáfunni í Vínarborg í vor.

Julia Tinhof píanó­leikari er fædd í Vín. Hún stund­aði píanó­nám hjá Lazar Berman við Franz Liszt tón­listar­háskól­ann í Weim­ar í Þýska­landi. Síðan 2004 hefur hún kennt píanó­með­leik við Tón­listar­háskól­ann í Vín þar sem hún leggur aðal­áherslu á ljóða­söng. Hún hefur leitað sér­stak­lega eftir hand­rit­um austur­rískra kven­tónskálda í sam­vinnu við tón­listar­safn austur­ríska ríkis­bóka­safnsins og einn­ig vinnur hún að því að vekja upp minn­ingu austur­rískra tón­skálda sem flæmd­ust burtu vegna upp­gangs nas­ism­ans. Þannig varð geisla­diskurinn Exiles til árið 2006 með sópran­söng­kon­unni Judith Kopecky. Kynn­ing þess­ara sér­stöku efnis­skráa um ger­valla Evrópu, allt frá Myrkum Músíkdögum á Íslandi, Happy New Ear í Wiesel­burg í Austur­ríki, minn­ingar­tón­leik­um um frels­un Maut­hausen í austur­ríska þing­hús­inu − allt til Aþenu, þar sem hún frum­flutti verk blindu sam­tíma­konu Mozarts, Maria Theresia von Paradis.
    Julia hef­ur leikið og stjórn­að tón­listar­flutn­ingi við ým­sar leik­sýn­ing­ar, til dæmis Theater Spiel­raum við Bisam­berg­er Schloss­fest­spiele, Wiener Volks­theat­er í Hin und Her eftir Ödön von Horvath með tón­list eftir Hans Gál og í Alma eftir Paulus Manker, Sanatorium Purkersdorf.

Tónleikasíður safnins  á íslensku og ensku eru uppfærðar reglulega

Press Release for a Concert in Sigurjón Ólafsson Museum

Sigurjón Ólafsson Museum Summer Concerts

Sigurjón Ólafsson Museum
Tuesday evening,
July 1th, 2023 at 8:30 pm

Admission ISK 2500
at the entrance
Major credit cards accepted

Where is the Museum?

Marina and Julia
A PDF version of the program.

Further information on this concert gives:
Sybil Urbancic tel. 0043-1-3681343

Further information on the concert series gives:
Hlíf Sigurjónsdóttir, tel. (354) 863 6805

Premonition / Vorahnung
Marina Margaritta Colda soprano and Julia Tinhof piano.
Works by the Austr­ian composer Victor Urban­cic who moved to Ice­land in 1938, with his wife Melitta, due to the rise of the Nazism in Europe. He was a highly edu­cat­ed music­ian, an ex­cellent pian­ist, organ­ist and com­pos­er. The pro­gram con­sists of twelve solo songs from his youth - one of them with poem by his wife − and a song cycle which he wrote shortly be­fore he left his home­land. Also two solo works for piano. Only few of these works have been heard in Ice­land.
The Austrian Victor Urban­cic emi­grat­ed to Ice­land in 1938. He was one of many com­pos­ers who had to flee from the National Social­ism for vari­ous reas­ons. Un­justly, Urban­cic’s com­posit­ions, for example in the field of art song, are largely un­known to public. Sopr­ano Mar­ina Colda and pian­ist Julia Tin­hof very re­cently re­leas­ed the album „Vorahnung“ with songs by Victor Urbancic in Vienna, Label Gramola. The lyr­ics of the songs, most of them com­posed around 100 years ago, bear wit­ness of the com­posers love for poetry by, for example, Ed­uard Mör­ike, Lud­wig Uh­land, Jul­ius Bier­baum, Eva von Collani, Theo­dor Storm, Christ­ian Morgen­stern, Con­rad Ferd­inand Meyer and others. Marina Colda is a graduate of the Uni­versity of Music and Per­form­ing Arts Vienna, where she stud­ied clas­sical sing­ing with Rann­veig Braga-Postl. This is where Julia Tinhof teaches, too. In Ice­land the Duo now presents 12 of these songs, written at Urbancic’s young age, and a cycle of three works compos­ed shortly before Victor Urbancic left his homeland. Further twi piano pieces, one of which − as most of the songs − have never before been performed in Iceland.     S.U.

The Austrian soprano Marina Margaritta Colda studied classical singing and vocal pedagogy at the University of Music and Performing Arts in Vienna. Engagements in the genre of musical theater include: Marie in Grüezi − Der wilde Mann by R. Stolz with the Ensemble Mutz (Musiktheater Zürich), Adele in Die Fledermaus by J. Strauss with the Ensemble Oper@Tee, Gretel in Hänsel und Gretel by E. Humperdinck at Oper in der Krypta. The versatile singer also acted and sang with renowned actors, as Jugend in Der Bauer als Millionär by F. Raimund in Theater in der Josefstadt, as Nannett in Das Mädl aus der Vorstadt by J. N. Nestroy in Schlossspiele Kobersdorf, and recently as Rita in the operetta Die Rose des Kaisers by Paul Hertel in Theater Center Forum in Vienna.
    In the last years she has devoted herself to songs by female composers and performed a selection of their works at the exhibition Musica Femina at the Orangerie Schönbrunn. This included songs by Fanny Hensel, Clara Schumann, Amy Beach, Cecile Chaminade and last but not least Pauline Viardot. This spring Gramola label in Vienna released the CD Vorahnung with works by late Victor Urbancic performed by her and Julia Tinhof.

Born in Vienna, pianist Julia Tinhof was trained as a concert pianist in Lazar Berman’s master class at the Franz Liszt University of Music in Weimar. Since 2004 she holds the position of Senior Lecturer for accompaniment at the University of Music and Performing Arts in Vienna. Her main focus is on art song, especially the handwritten bequests of Austrian women composers in cooperation with the Music Collection of the Austrian National Library; further, the rediscovery of composers whose careers were cut short by the expulsion from Austria by National Socialism. In this context, the CD Exiles was produced in 2006 with soprano Judith Kopecky. Concerts with this extraordinary music took her all over Europe, from Dark Music Days in Iceland to Happy New Ear in Wieselburg Austria, a concert commemorating the liberation of Mauthausen in the Austrian Parliament, and to Athens, where she first performed music by Maria Theresia von Paradis, Mozart’s blind contemporary.
    Performances as pianist and music director in theater productions include Theater Spielraum, Bisamberger Schlossfestspiele, Vienna Volkstheater in Hin und Her by Ödön von Horvath with music by Hans Gál, and Alma by Paulus Manker, Sanatorium Purkersdorf.

These concerts, taking place Tuesday evenings during the summer, have become a tradition in the cultural life of Reykjavík. The main hall of the Museum seats up to 90 people and its warm acoustics are ideal for solos, duos and smaller chamber groups. Information on the concerts are available at www.LSO.is in English as well as Icelandic.
Ábyrgðarmaður fréttatilkynningar er
Geirfinnur Jónsson
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Sími 553 2906 netfang:LSO@LSO.IS

fréttatilkynningu lokið / end of release