Viðburðir tengdir sýningunni Listamaður á söguslóðum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 31. janúar − 22. mars 2015 |
|
Föstudagskvöld, 6. febrúar (safnanótt)
kl. 20:00 og 21:30 |
Leiðsögn um sýninguna Vibeke Nørgard Nielsen og Sigurlín Sveinbjarnardóttir |
Sunnudaginn 15. febrúar kl. 15:00 |
Sýn á sögustaði Fyrlestur Einars Fals Ingólfssonar Fjallað Verðir um sýn tveggja listamanna, bretans William Gershom Collingwood (1854-1932) og Johannesar Larsen (1867-1961) á staði sem koma fyrir í Íslendingasögunum. Collingwood ferðaðist um Ísland sumarið 1897 og málaði vatnslitamyndir, en Johannes Larsen teiknaði sínar myndir sumrin 1927 og 1930. Sem þrautþjálfaðir listamenn nálguðust þeir myndefnið á sinn persónulega hátt með hliðsjón af sögunum. Einar Falur bregður upp myndum sem listamennirnir unnu hér, í mörgum tilvikum á sömu stöðum, og sýnir eigin ljósmyndir. |
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 15:00 |
Ferðir Johannes Larsen um Ísland og
dagbækur hans Vibeke Nørgaard Nielsen og Sigurlín Sveinbjarnardóttir |
Sunnudaginn 1. mars kl. 15:00 |
Þarfur arfur og hirðdrápur Erindi Þórarins Eldjárn |
Sunnudaginn 15. mars kl. 15:00 |
Tónverk fyrir einleiksfiðlu Að heiman eftir Rúnu Ingimundar og Bel Canto eftir Poul Ruders Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari |
Sunnudaginn 22. mars kl. 15:00 |
Dönsk og íslensk sönglög Í flutningi Kristjönu Arngrímsdóttur og Kristjáns Eldjárn Hjartarsonar. Kynnir: Vibeke Nørgard Nielsen |